• Sendaleiga

    Viltu reka útvarpsstöð í stuttan eða langan tíma ?

    Við hjá www.elnet.is  bjóðum upp á allan búnað til þess!     

    Hentar vel fyrir starfsdaga skóla og félagsmiðstöðva, íþróttamót, kosningaumræður, jarðafarir, ættarmót, helgarhátíðir og aðra mannfagnaði.

    Í yfir 20 ár höfum við leigt út búnað til FM útsendinga frá þekktum framleiðendum.



     

     

    Með búnaði www.elnet.is getur þú sett af stað útvarpsstöð með :

     

    • Fullkomnum 6 rása mixer, sem er með inngangi fyrir 1-2 símalínur.
    • Compressor (styrkjafnara) sem gætir þess að hljóðið sem fer í loftið sé jafnt og þétt.
    • FM sendi, allt að 100 W Stereo útsending.
    • FM sendiloftneti, sem tryggir hámarksdreifingu frá FM sendi.
    • Hljóðnemum  + stöndum, heyrnatólum, snúrum og tengjum.


      Einnig leigjum við út FM sendibúnað til að nota í bílum eða öðrum faratækjum t.d. ef margir bílar eru að ferðast saman þá getur einn bíllinn verið með þennan sendibúnað og sent út upplýsingar ( tal og tóna) sem aðrir geta hlustað á í bílaútvörpum.

     

    Ef þú vilt vita meira um sendaleiguna hafðu þá samband í síma: 554 2727, eða kíktu í heimsókn í Dalveg 16b

    Póst og fjarskiptastofnun úthlutar tíðni og veitir leyfi fyrir skamtíma FM útsendingum.

     

    Nánar um úthlutun á tíðnum

     

    Skammtímahljóðvarp

    Samhliða umsókn um leyfi til Útvarpsréttarnefndar skal sótt um senditíðni til Póst- og fjarskiptastofnunar vegna skammtímahljóðvarpsins. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram í umsókninni:

    Nafn og kennitala umsækjanda 
  • Útsendingardagar
  • Staðsetning sendis
  • Frá hverjum er sendirinn
  • Gjald fyrir skammtímahljóðvarp er greitt til Póst- og fjarskiptastofnunar.

    Þegar um er að ræða hljóðvarp frá kirkjum vegna jarðarfarar (hámark 3 klst), þarf ekki að sækja um útvarpsleyfi til Útvarpsréttarnefndar en nóg er að sækja um senditíðni til Póst- og fjarskiptastofnunar með ofangreindum  upplýsingum.

    Senda má umsókn með tölvupósti .